Þegar gengið er á Geirhnúk frá Hlíð er best að fylgja slóðanum inn að vatninu í fyrstu, en beygja út af honum til hægri áður en hann fer niður sneiðinginn að vatninu. Ef gengið er eftir hlíðinni á Dýjadölum er engin hækkun fyrr en komið er inn í Fossabrekku. Gengið er inn fyrir Háafoss, en þar er beygt og stefnan tekin á Geirhnúk. Þegar að hnúknum er komið er eina uppgangan austan á honum. Rétt er að fara varlega því mikið laust grjót hangir sunnann í honum.
Stysta leiðin niður að Hítarvatni er niður í gegnum Neðri-Snjódal. Þar eru tvö gil sem rétt er að fara niður á milli og í neðsta klettabeltinu er gott að fara niður í gegnum gilið til hægri.