photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008

Sem fyrr lagði vinahópurinn land undir fót í sína árlegu sumarferð og nú til Bjarmalands á Tálknafirði, gististaðar sem vert er að mæla með. Þar vorum við í viku. Ferðin hófst í Stykkishólmi að morgni laugardags 19. júlí. Þaðan héldum við með hinni ágætu Breiðafjarðaferju Baldri til Flateyjar, þar sem við dvöldum daglangt. Bílarnir héldu áfram og var skipað á land á Brjánslæk. Við héldum svo för okkar áfram með seinni ferð Baldurs. Og nú var haldið á vit ættfeðranna, nánar tiltekið á slóðir Gísla Súrssonar og fjölskyldu, sem hingað kom um 950. Meginsvið sögu hans eru einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður og frá Tálknafirði gerðum við út og fórum í ýmsa leiðangra.

Fórum með Arnarfirði til Hvestu, Hringsdals, Uppsala og fleiri staða. Ókum um fræga Kjaransbraut frá Hrafnseyri til Þingeyrar, en þar náðum við okkur í góðan leiðsögumann sem gekk með okkur um slóðir Gísla í Haukadal. Við ókum til Rauðasands, þar sem tilvalið er að fá sér heitt kakó og vöfflur á kaffihúsinu á staðnum og fara síðan með fjörunni endilangri, þar til eyðibýlið Sjöundá blasir við í fjarska, en þar gerðust morðin 1802, sem Gunnar Gunnarsson skrifaði um.

Við litum við í Hænuvík og Sauðlauksdal. Við sigldum frá Bíldudal til Geirþjófsfjarðar, aftur á slóðir Gísla, þar sem hann háði lokaorrustuna og féll. Til Geirþjófsfjarðar sigldum við með og undir dyggri leiðsögn Jóns Þórðarsonar, útgerðarmanns og ferðafrömuðar, sem lagt hefur þung lóð á vogarskálar við uppbyggingu Bíldudals. Á leið til baka til „Bíldudals grænna“ var tekið til við „þorskveiðar“ með takmörkuðum árangri þó en ánægjulegum. Daginn eftir lauk ferðinni og héldu allir sælir og glaðir heim á ný eftir heila sjö daga dýrmæta samveru.

Eftir á að hyggja sé ég mest eftir því að hafa ekki snúið við til baka eftir að hafa farið um Skútabjörg í Arnarfirði til að fara eftir hinum gamla fjallvegi um Kvennaskarð yfir til Þingeyrar í stað þess að fara áfram um Lokinhamra yfir til Dýrafjarðar og áfram til Þingeyrar, en þá leið höfum við hjónin áður farið. Um Kvennaskarð ekki.

Fróðleikur: Vestfirskar heiðar.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Á Bíldudal. Á leið til Geirþjófsfjarðar með Jóni Þórðarsyni
Á Bíldudal. Á leið til Geirþjófsfjarðar með Jóni Þórðarsyni
Jón Þórðaraon
Jón Þórðaraon
Egill var upprifinn af þessu öllu...
Egill var upprifinn af þessu öllu...
...og þurfti að skoða alla króka og kima
...og þurfti að skoða alla króka og kima
Á leið í Geirþjófsfjörð
Á leið í Geirþjófsfjörð
Hrafnhildur með Pjakkinn sinn
Hrafnhildur með Pjakkinn sinn
Hrafnhildur og Skúli
Hrafnhildur og Skúli
Feðgar á ferð
Feðgar á ferð
Í Geirþjófsfirði
Í Geirþjófsfirði
Langi-Botn
Langi-Botn
Kaffitími
Kaffitími
Á leið í skoðunarferð
Á leið í skoðunarferð
Egill fylgi leiðsögumanni Jóni fast á hæla
Egill fylgi leiðsögumanni Jóni fast á hæla
Við eitt af fylgsnum Gísla Súrssonar
Við eitt af fylgsnum Gísla Súrssonar
Á Kleifum, þar sem lokabardaginn hófst
Á Kleifum, þar sem lokabardaginn hófst
g3/12/32712/2/101196945.pFhqu6AQ.jpg Í tengslum við Alþingishátíðina 1930 var höggvin í Einhamar minning um Gísla Súrsson og Auði Vésteinsdóttur
Í tengslum við Alþingishátíðina 1930 var höggvin í Einhamar minning um Gísla Súrsson og Auði Vésteinsdóttur
Á Einhamri
Á Einhamri
Á leið til baka
Á leið til baka
Í sjóstöng, fremur leiðinlegu sporti!
Í sjóstöng, fremur leiðinlegu sporti!
Afli dagsins
Afli dagsins
Komin til baka
Komin til baka
Ferð á enda runnin
Ferð á enda runnin
Í Flókalundi
Í Flókalundi
Í sól og blíðu
Í sól og blíðu
Á leið til Reykhóla
Á leið til Reykhóla
Í Bjarkarlundi...
Í Bjarkarlundi...
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page