photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Type your message and click Add Comment
It is best to login or register first but you may post as a guest.
Enter an optional name and contact email address. Name
Name Email
help private comment
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008

Sem fyrr lagði vinahópurinn land undir fót í sína árlegu sumarferð og nú til Bjarmalands á Tálknafirði, gististaðar sem vert er að mæla með. Þar vorum við í viku. Ferðin hófst í Stykkishólmi að morgni laugardags 19. júlí. Þaðan héldum við með hinni ágætu Breiðafjarðaferju Baldri til Flateyjar, þar sem við dvöldum daglangt. Bílarnir héldu áfram og var skipað á land á Brjánslæk. Við héldum svo för okkar áfram með seinni ferð Baldurs. Og nú var haldið á vit ættfeðranna, nánar tiltekið á slóðir Gísla Súrssonar og fjölskyldu, sem hingað kom um 950. Meginsvið sögu hans eru einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður og frá Tálknafirði gerðum við út og fórum í ýmsa leiðangra.

Fórum með Arnarfirði til Hvestu, Hringsdals, Uppsala og fleiri staða. Ókum um fræga Kjaransbraut frá Hrafnseyri til Þingeyrar, en þar náðum við okkur í góðan leiðsögumann sem gekk með okkur um slóðir Gísla í Haukadal. Við ókum til Rauðasands, þar sem tilvalið er að fá sér heitt kakó og vöfflur á kaffihúsinu á staðnum og fara síðan með fjörunni endilangri, þar til eyðibýlið Sjöundá blasir við í fjarska, en þar gerðust morðin 1802, sem Gunnar Gunnarsson skrifaði um.

Við litum við í Hænuvík og Sauðlauksdal. Við sigldum frá Bíldudal til Geirþjófsfjarðar, aftur á slóðir Gísla, þar sem hann háði lokaorrustuna og féll. Til Geirþjófsfjarðar sigldum við með og undir dyggri leiðsögn Jóns Þórðarsonar, útgerðarmanns og ferðafrömuðar, sem lagt hefur þung lóð á vogarskálar við uppbyggingu Bíldudals. Á leið til baka til „Bíldudals grænna“ var tekið til við „þorskveiðar“ með takmörkuðum árangri þó en ánægjulegum. Daginn eftir lauk ferðinni og héldu allir sælir og glaðir heim á ný eftir heila sjö daga dýrmæta samveru.

Eftir á að hyggja sé ég mest eftir því að hafa ekki snúið við til baka eftir að hafa farið um Skútabjörg í Arnarfirði til að fara eftir hinum gamla fjallvegi um Kvennaskarð yfir til Þingeyrar í stað þess að fara áfram um Lokinhamra yfir til Dýrafjarðar og áfram til Þingeyrar, en þá leið höfum við hjónin áður farið. Um Kvennaskarð ekki.

Fróðleikur: Vestfirskar heiðar.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Ferðin hófst í Hólminum...
Ferðin hófst í Hólminum...
Flestir héldu sig ofan þilja ...
Flestir héldu sig ofan þilja ...
...enda veðrið eins og best verður á kosið
...enda veðrið eins og best verður á kosið
Stykkishólmur kvaddur
Stykkishólmur kvaddur
Komið til Flateyjar á Breiðarfirði
Komið til Flateyjar á Breiðarfirði
Baldur heldur áfram til Brjánslækjar
Baldur heldur áfram til Brjánslækjar
Flateyingarnir og heiðurshjónin Ólína Jónsdóttir &...
Flateyingarnir og heiðurshjónin Ólína Jónsdóttir &...
Hafsteinn Guðmundsson. Þar fengum við aldeilis gott kaffi
Hafsteinn Guðmundsson. Þar fengum við aldeilis gott kaffi
Elsta höfnin
Elsta höfnin
Fríða, Sigga og Pála pössuðu mig allar þegar é var lítill :)
Fríða, Sigga og Pála pössuðu mig allar þegar é var lítill :)
Egill Logi fann margan steininn
Egill Logi fann margan steininn
Gamla frystihúsið í Flatey verður gert upp
Gamla frystihúsið í Flatey verður gert upp
Ný bryggja við Brjánslæk
Ný bryggja við Brjánslæk
Tálknafjörður og Bjarmaland í baksýn
Tálknafjörður og Bjarmaland í baksýn
Í kaffi hjá Þór og Tryggva hjá Særöst á Tálknafirði
Í kaffi hjá Þór og Tryggva hjá Særöst á Tálknafirði
Inger að taka upp og gera klárt
Inger að taka upp og gera klárt
Skúli og Bessi að taka hjólin af kerrunni
Skúli og Bessi að taka hjólin af kerrunni
Reiðhjólin voru líka með í för
Reiðhjólin voru líka með í för
Lúsí með bangsann sinn!
Lúsí með bangsann sinn!
Dorg á Tálknafirði
Dorg á Tálknafirði
Besta gisting á Vestfjörðum!
Besta gisting á Vestfjörðum!
Á leið til Uppsala...
Á leið til Uppsala...
Fjaran við Hvestu í Arnarfirði
Fjaran við Hvestu í Arnarfirði
Áfram haldið til Samúels í Selárdal
Áfram haldið til Samúels í Selárdal
Kirkjan í Selárdal
Kirkjan í Selárdal
Fífustaðir?
Fífustaðir?
Hús Gísla í Uppsölum sem byrjað er að gera upp
Hús Gísla í Uppsölum sem byrjað er að gera upp
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page