photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008

Sem fyrr lagði vinahópurinn land undir fót í sína árlegu sumarferð og nú til Bjarmalands á Tálknafirði, gististaðar sem vert er að mæla með. Þar vorum við í viku. Ferðin hófst í Stykkishólmi að morgni laugardags 19. júlí. Þaðan héldum við með hinni ágætu Breiðafjarðaferju Baldri til Flateyjar, þar sem við dvöldum daglangt. Bílarnir héldu áfram og var skipað á land á Brjánslæk. Við héldum svo för okkar áfram með seinni ferð Baldurs. Og nú var haldið á vit ættfeðranna, nánar tiltekið á slóðir Gísla Súrssonar og fjölskyldu, sem hingað kom um 950. Meginsvið sögu hans eru einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður og frá Tálknafirði gerðum við út og fórum í ýmsa leiðangra.

Fórum með Arnarfirði til Hvestu, Hringsdals, Uppsala og fleiri staða. Ókum um fræga Kjaransbraut frá Hrafnseyri til Þingeyrar, en þar náðum við okkur í góðan leiðsögumann sem gekk með okkur um slóðir Gísla í Haukadal. Við ókum til Rauðasands, þar sem tilvalið er að fá sér heitt kakó og vöfflur á kaffihúsinu á staðnum og fara síðan með fjörunni endilangri, þar til eyðibýlið Sjöundá blasir við í fjarska, en þar gerðust morðin 1802, sem Gunnar Gunnarsson skrifaði um.

Við litum við í Hænuvík og Sauðlauksdal. Við sigldum frá Bíldudal til Geirþjófsfjarðar, aftur á slóðir Gísla, þar sem hann háði lokaorrustuna og féll. Til Geirþjófsfjarðar sigldum við með og undir dyggri leiðsögn Jóns Þórðarsonar, útgerðarmanns og ferðafrömuðar, sem lagt hefur þung lóð á vogarskálar við uppbyggingu Bíldudals. Á leið til baka til „Bíldudals grænna“ var tekið til við „þorskveiðar“ með takmörkuðum árangri þó en ánægjulegum. Daginn eftir lauk ferðinni og héldu allir sælir og glaðir heim á ný eftir heila sjö daga dýrmæta samveru.

Eftir á að hyggja sé ég mest eftir því að hafa ekki snúið við til baka eftir að hafa farið um Skútabjörg í Arnarfirði til að fara eftir hinum gamla fjallvegi um Kvennaskarð yfir til Þingeyrar í stað þess að fara áfram um Lokinhamra yfir til Dýrafjarðar og áfram til Þingeyrar, en þá leið höfum við hjónin áður farið. Um Kvennaskarð ekki.

Fróðleikur: Vestfirskar heiðar.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Séð ofan í Geirþjófsfjörð af Dynjandisheiði. Langi-Botn innst
Séð ofan í Geirþjófsfjörð af Dynjandisheiði. Langi-Botn innst
g3/12/32712/2/101187690.2rAkf5wT.jpg Á leið af Dynjandisheiði ofan í samnefndan vog
Á leið af Dynjandisheiði ofan í samnefndan vog
Í fjörunni í Dynjandisvogi
Í fjörunni í Dynjandisvogi
Mjólkárvirkjun í Borgarfirði í Arnarfirði
Mjólkárvirkjun í Borgarfirði í Arnarfirði
Framundan eyðibýlin Lónseyri & Tunga. Svalbarði ofar t.h. Hrafnseyri að baki
Framundan eyðibýlin Lónseyri & Tunga. Svalbarði ofar t.h. Hrafnseyri að baki
Tjaldanes (eyðibýli)
Tjaldanes (eyðibýli)
Eyrarfjall. T.v. Hvestudalur. T.h. er Hringsdalur
Eyrarfjall. T.v. Hvestudalur. T.h. er Hringsdalur
Áfram haldið. Álftamýrarmúli framundan.
Áfram haldið. Álftamýrarmúli framundan.
T.v. glittir í Bakkadal. Næst er Ytrihvilft, síðan Innrihvilft. Loks glittir í Hringsdal
T.v. glittir í Bakkadal. Næst er Ytrihvilft,
síðan Innrihvilft. Loks glittir í Hringsdal
Álftamýri
Álftamýri
Fjallvegur um Kvennaskarð, Heiðarfjall & Þórugil á leið til Sanda & Þingeyrar
Fjallvegur um Kvennaskarð, Heiðarfjall & Þórugil á leið til Sanda & Þingeyrar
Stapadalur
Stapadalur
Undir Kerlingum. Stapi framundan
Undir Kerlingum. Stapi framundan
Undir Skútabjörgum
Undir Skútabjörgum
Skútabjörg
Skútabjörg
Skútabjörg á leið til Lokinhamra
Skútabjörg á leið til Lokinhamra
Undir Skeggja
Undir Skeggja
Skammt í Hrafnabjörg
Skammt í Hrafnabjörg
Á undirlendi undir Skeggja
Á undirlendi undir Skeggja
Hrafnabjörg
Hrafnabjörg
Jón & Sveinn í Lokinhamradal
Jón & Sveinn í Lokinhamradal
Hrafnhildur í klettaklifri
Hrafnhildur í klettaklifri
Eyðibýlið Svalvoum
Eyðibýlið Svalvoum
Undir leiðsögn í Haukadal...
Undir leiðsögn í Haukadal...
...á slóðum Gísla Súrssonar. Mæli með því.
...á slóðum Gísla Súrssonar. Mæli með því.
g3/12/32712/2/101188678.JU6H8tBm.jpg
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page