photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Tálknafjörður og nærsveitir - Júlí 2008

Sem fyrr lagði vinahópurinn land undir fót í sína árlegu sumarferð og nú til Bjarmalands á Tálknafirði, gististaðar sem vert er að mæla með. Þar vorum við í viku. Ferðin hófst í Stykkishólmi að morgni laugardags 19. júlí. Þaðan héldum við með hinni ágætu Breiðafjarðaferju Baldri til Flateyjar, þar sem við dvöldum daglangt. Bílarnir héldu áfram og var skipað á land á Brjánslæk. Við héldum svo för okkar áfram með seinni ferð Baldurs. Og nú var haldið á vit ættfeðranna, nánar tiltekið á slóðir Gísla Súrssonar og fjölskyldu, sem hingað kom um 950. Meginsvið sögu hans eru einkum Dýrafjörður, Arnarfjörður og Breiðafjörður og frá Tálknafirði gerðum við út og fórum í ýmsa leiðangra.

Fórum með Arnarfirði til Hvestu, Hringsdals, Uppsala og fleiri staða. Ókum um fræga Kjaransbraut frá Hrafnseyri til Þingeyrar, en þar náðum við okkur í góðan leiðsögumann sem gekk með okkur um slóðir Gísla í Haukadal. Við ókum til Rauðasands, þar sem tilvalið er að fá sér heitt kakó og vöfflur á kaffihúsinu á staðnum og fara síðan með fjörunni endilangri, þar til eyðibýlið Sjöundá blasir við í fjarska, en þar gerðust morðin 1802, sem Gunnar Gunnarsson skrifaði um.

Við litum við í Hænuvík og Sauðlauksdal. Við sigldum frá Bíldudal til Geirþjófsfjarðar, aftur á slóðir Gísla, þar sem hann háði lokaorrustuna og féll. Til Geirþjófsfjarðar sigldum við með og undir dyggri leiðsögn Jóns Þórðarsonar, útgerðarmanns og ferðafrömuðar, sem lagt hefur þung lóð á vogarskálar við uppbyggingu Bíldudals. Á leið til baka til „Bíldudals grænna“ var tekið til við „þorskveiðar“ með takmörkuðum árangri þó en ánægjulegum. Daginn eftir lauk ferðinni og héldu allir sælir og glaðir heim á ný eftir heila sjö daga dýrmæta samveru.

Eftir á að hyggja sé ég mest eftir því að hafa ekki snúið við til baka eftir að hafa farið um Skútabjörg í Arnarfirði til að fara eftir hinum gamla fjallvegi um Kvennaskarð yfir til Þingeyrar í stað þess að fara áfram um Lokinhamra yfir til Dýrafjarðar og áfram til Þingeyrar, en þá leið höfum við hjónin áður farið. Um Kvennaskarð ekki.

Fróðleikur: Vestfirskar heiðar.
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Fjárhúsið sem Gísli notaði
Fjárhúsið sem Gísli notaði
Fjárhús bróður hans sem er við hús Gísla en sem hann vildi ekki nota
Fjárhús bróður hans sem er við hús Gísla en sem hann vildi ekki nota
Á leið til baka...
Á leið til baka...
Hvesta
Hvesta
Egill búinn að fá nóg í bili
Egill búinn að fá nóg í bili
Í Bjarmalandi, Pjakkur að reyna við Bessa. Gekk bara vel.
Í Bjarmalandi, Pjakkur að reyna við Bessa. Gekk bara vel.
Svenni gerir humarinn kláran
Svenni gerir humarinn kláran
Bessi og Skúli fóru á mótorhjólum til Rauðasands
Bessi og Skúli fóru á mótorhjólum til Rauðasands
Séð ofan Bjarnagötudal niður og í átt til Rauðasands
Séð ofan Bjarnagötudal niður og í átt til Rauðasands
Heiðin niður Bjarnagötudal
Heiðin niður Bjarnagötudal
Í Melanesi
Í Melanesi
Rauðisandur
Rauðisandur
Skúli
Skúli
Bessi
Bessi
Sigurlaug og Inger
Sigurlaug og Inger
Horft í átt til Sjöundár
Horft í átt til Sjöundár
Garðar BA 64 á landi í Skápadal við Patreksfjörð
Garðar BA 64 á landi í Skápadal við Patreksfjörð
Svenni forvitni
Svenni forvitni
Egill Logi tók myndir fyrir pabba sinn...
Egill Logi tók myndir fyrir pabba sinn...
...sem vildi ekki skíta sig út!
...sem vildi ekki skíta sig út!
Draugalegt!
Draugalegt!
Undir brúnni
Undir brúnni
Loftskeytaherbergið?
Loftskeytaherbergið?
Patró
Patró
Daginn eftir héldum við til Hænuvíkur. Eyðibýli
Daginn eftir héldum við til Hænuvíkur. Eyðibýli
Í Hafnarmúla
Í Hafnarmúla
Hnjótar
Hnjótar
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page