photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | all galleries >> Annað >> Móður- og föðurfjölskylda Ásdísar Guðrúnar Kjartansdóttur (Addýar) > Steypuhúsgata 7 á Ísafirði (síðar Sólgata)
previous | next

Steypuhúsgata 7 á Ísafirði (síðar Sólgata)

Þann 9. júní 1916 fór fram mat á húseigninni nr. 7 við Steypuhúsgötu á Ísafirði.
„Íbúðarhús úr timbri, járnvarið og með járnþaki, byggt 1903.
Eigandi og notandi Sigurgeir Kristjánsson húsmaður.
Húsið er einlyft að stærð 7x10 álnir og í því eru þrjú herbergi.
Kjallari er undir húsinu 8x6 álnir. Vatnsleiðsla er í húsinu.
Eigninni fylgja fjárhúskofar án lóðaréttinda, sem þá verður að flytja brott þegar krafist er.
Lóð sú, sem eigninni fylgir, er að stærð 204 ferálnir.
Mat: Húsið kr. 1500, lóð kr. 300. Aðalvirðing eignarinnar kr. 1800”
Undir þessa matsgerð rita: G. Hannesson (síðar sýslumaður), Sig. Jónsson og Arngr. Fr. Bjarnason.

Götur á Ísafirði báru hin furðulegustu nöfn í upphafi liðinnar aldar.
Steypuhúsgata hlaut nafn sitt af því, að við hana reis fyrsta steinsteypta húsið á Ísafirði.
Sjá má í gaflinn á því á myndinni. Hrannargata var ýmist kölluð Templaragata eða Bindindisgata vegan þess að Templarahúsið stóð við þá götu.
Árið 1929 var nöfnum flestra gatna á Ísafirði breytt, og hlaut Steypuhúsgatan þá nafnið Sólgata, en Bindindisgata varð Hrannargata.


other sizes: small medium large original auto
comment | share