photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Móskarðshnjúkar - Laufskörð og Esjan endilöng - 4.ágúst 2011 tree view | thumbnails | slideshow

Móskarðshnjúkar - Laufskörð og Esjan endilöng - 4.ágúst 2011

Við höfðum talað um það all nokkuð við Hrafnhildur, Bessi og Inger að ganga Esjuna frá Laufskörðum til Hvalfjarðarafleggjara. Þegar til kom, spáin ágæt og við í fríi, ákváðu Skúli og Sigurlaug að slást með í för. Gangan hófst um kl. 10 skammt frá Þverárkoti. Héldum fyrst á Móskarðshnjúka, þaðan um Laufskörð uppá Esju og þaðan á Hábungu. Á leið þangað ákváðu reyndar Bessi og Hrafnhildur að koma við á Hátindi. Eftir það var leiðin hefðbundin, bara stikað áfram. Í stuttu máli þá er þetta ein af þessum "been there done that" ferðum. Stórgrýti mestalla leiðina með stuttum melarflákum á milli. Útsýni lítið, maður er lengst inná fjalli og útsýni til allra átta fátt annað en grjót. Þó, þrátt fyrir allt erum við öll ánægð eftir daginn enda fátt betra en mikil líkamleg þreyta. Þetta ku vera skilgreind sem erfið leið hjá ferðafélögunum. Samantekt: 26 km, samanlögð hækkun um 1.300 m.
previous pagepages 1 2 3 ALL next page
Bolli ræðir við Steina Gunnars um sexkanta
Bolli ræðir við Steina Gunnars um sexkanta
Laugargnípa. Brimnes á Kjalarnesi undir
Laugargnípa. Brimnes á Kjalarnesi undir
Ein hópmynd með mikilli fyrirhöfn.Bolli, Hrafnhildur, Sigurlaug, Skúli, Bessi & Inger
Ein hópmynd með mikilli fyrirhöfn.
Bolli, Hrafnhildur, Sigurlaug, Skúli, Bessi & Inger
Þrammað í átt til Blikdals
Þrammað í átt til Blikdals
Og svo hófst klöngrið niður
Og svo hófst klöngrið niður
Ansi bratt sem tók á hnén!
Ansi bratt sem tók á hnén!
Best að ganga með fjallinu og lækka sig hægt
Best að ganga með fjallinu og lækka sig hægt
Þetta er alveg að verða búið - 9 klst ganga að baki
Þetta er alveg að verða búið - 9 klst ganga að baki
Ýmist talað um sturtu, franskar eða hamborgara
Ýmist talað um sturtu, franskar eða hamborgara
previous pagepages 1 2 3 ALL next page