Árleg ferð með viðskiptavin og velunnara Arctic Trucks í Noregi var farin í byrjun mars 2007. Alls voru um 35 manns á ferð. Farið var frá Reykjavík til Húsafells og áfram til Þjófakróks undir Langjökli. Þaðan var 1,5 punda færi uppað Söðli og þaðan tveggja punda færi eftir jökli. Vægast bölvað bras að koma sér uppí hæð. Héldum niður í Skálpanes og vorum komin á Hótel Gullfoss um kl. 22, þar sem tekið var til við eldamennsku. Héldum daginn eftir til Þingvalla og þaðan um Grafning til Nesjavalla og áfram til Rvk.