Hér er ferð okkar félaganna dagana 30. janúar til 1. febrúar 2004 um Langjökul til Hveravalla, þaðan sem haldið var um Kerlingafjöll til Seturs og áfram um Sóleyjarhöfða til Hrauneyja og heim. Á föstudagsmorgni lögðu af stað Skúli og Haukur, Rikkarnir tveir, Bessi og Jón á móti, Siggi Rögg og Steini auk Halldórs. Þeir fóru í Þjófakrók ofan Húsafells og þaðan áfram til Hveravalla. Um kvöldið birtust Bolli og Raggi auk Heimis Gunnarssonar. Á laugardagsmorgni vöknuðum við seint, um kl. 9.30, í hlýjum kofanum en úti var 22 stiga frost og heiðskýrt. Það voru skringileg hljóð sem heyrðust í bílvélunum við ræsingu þótt allir flygju þeir í gang. Frá Hveravöllum héldum við til Kerlingafjalla og áfram í næsta náttstað, Setur. Þangað komum við um kaffi. Morguninn eftir héldum við áfram í brakandi gaddi og leiðinda sykurfæri um Sóleyjarhöfða áleiðis til Hrauneyja. Þetta var prýðileg ferð í góðra vina hópi, snjór yfir öllu, misjafnt færi, víða steinar undir en þó ekki alvarlegt vandamál.
Fallegustu myndirnar eru að sjálfsögðu teknar af Ragnari Th. hjá Arctic Images; þær eru auðþekktar! Hinar eru teknar af Bolla, Halldóri og Hauki.