Laugardagsmorguninn 10. maí kl. 6.30 lögðum við Hrafnhildur, Skúli, Inger og Bessi í göngu á Hvannadalshnúk með Ferðafélaginu. Lagt var af stað frá eyðibýlinu Sandfelli í Öræfum og voru um 90 manns í göngunni, að 13 leiðsögumönnum meðtöldum. Fyrir hópnum fór Haraldur Örn Ólafsson. Það rigndi allan tímann, alveg þar til byrjaði að snjóa, en síðan bættist við ísing. Skyggni var að meðaltali um 30 metrar. Okkur skilst að við höfum farið á Hvannadalshnúk og við verðum að trúa því. Þetta var frábær ferð sem hægt er að mæla með við alla. Hún er árleg á vegum FÍ, vel skipulögð og fjölmennið gerir hana bara skemmtilegri þrátt fyrir það sem maður bjóst við í upphafi. Maður kemur niður gjörsamlega nær dauða en lífi, en sæll með árangur af góðu dagsverki.