Árla dags laugardaginn 27.janúar 2007 lögðum við ásamt 6 öðrum fjölskyldumeðlimum upp í skíðaferð í frönsku alpana. Við flugum til Genf eftir stutt stopp á Charles du Gaule (CDG) í Paris. Eftir að hafa leitað án árangurs að tveimur töskum sem vantaði í farangurinn, gert smávægileg matarinnkaup þá komum við loks á leiðar enda til Saint Nicolas. Þar gistum við í húsi sem við höfðum fengið lánað hjá vinum okkar og létum fara vel um okkur á milli þess sem við þeystum um brekkurnar í nágrenninu. Veðrið lék við okkur, sól og sæla alla daga, snjórinn fínn og ekki var hægt að kvarta yfir fjallasýninni. Eftir að hafa skíðað af krafti í viku héldu allir sælir og heilir heim - bara nokkuð lukkulegir eins og sjá má á myndunum