Fyrir all nokkru síðan hét ég Elínu vinkonu minni að ég skyldi fylgja henni upp á Hvannadalshnúk þegar hún hefði tíma til enda afar upptekin kona. Í lok síðasta árs kvaðst Elín hafa lausann tíma í lok maí árið 2007. Mánuðir liðu og loks rann dagurinn upp og við vinkonurnar skunduðum af stað ásamt 105 öðrum göngugörpum undir leiðsögn frá Ferðafélagi Íslands. Allir komumst á toppinn og niður aftur sælir og glaðir með góðann dag. Svo skemmtilega vildi til að hún Eyrún systir mín hafði ákveðið að skella sér í þessa ferð líka og urðum við því samferða á Hnúkinn eins og sjá má á myndunum.