Þegar að réttardeginum kemur mæta margir á svæðið. Þeir sem eiga fé á fjalli til að draga og flytja heim. Bændurnir í sveitinni til að hitta nágrannana, ungdómurinn til að sletta úr klaufunum, þingmaðurinn til að ná sambandi við kjósendur og allir þar á milli.