Ég fór í göngur á Landmannaafrétt í haust eingöngu til að taka myndir. Þegar við komum í Landmannalaugar á föstudagskvöldi var blíða og marautt. Á laugardagsmorgninum var orðið hvítt og það snjóaði stanslaust allan daginn. Farið var inn í Jökulgil en skyggnið var nánast ekkert og lítið hægt að smala. Það má geta þess að svona veður í göngum er mjög sjaldgæft. Myndirnar lýsa veðrinu betur en nokkur orð.