Hjólaður var hringur frá Oberpurkla, inn í Sloveníu, til Ungverjalands og aftur í gegnum Sloveníu til Oberpurkla. 82,9 km, hjólatími 4 tímar og 56 mínútur og meðalhraði 17,5 km/klst. Ætlunin var að fara inn í Ungverjaland til að borða hádegisverð, engin matsala var í þorpinu sem við komum í. Sama sagan var í fyrstu þorpunum í Sloveníu og hópurinn var búinn að hjóla 65 km áður en matsölustaður fanns. Langur morgunn það.