photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Á skútu í Galíu: Sanxenxo - Ons - Vilagarcia - Muros - Baiona - Vigo - júní 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Á skútu í Galíu: Sanxenxo - Ons - Vilagarcia - Muros - Baiona - Vigo - júní 2008

Ríkarður Már Pétursson keypti sér hlut í 36 feta Beneteau Oceanis Clipper, sem vistuð er í smábátahöfninni í Vigo í Galíu á Spáni, sem er við Atlantshaf norður af Portúgal. Rikki bauð okkur Hrafnhildi og Skúla og Sigurlaugu í vikusiglingu á Renus II og héldum við utan 20. júní til Barcelona. Þaðan flugum við áfram til Vigo, þar sem Rikki átti að vera. Hann var þó strokinn þaðan til Sanxenxo sem er í rúmlega 1 klst. akstursfjarlægð frá Vigo. Komum seint þangað, slökuðum á daginn eftir en fórum uppúr hádegi út og tókum stefnuna á eyjuna Ons, en leyfi yfirvalda þarf til þess (don't ask me why!). Þar lágum við við akkeri en fórum á mótortuðru í land til að skoða eyna og borða kvöldverð. Daginn eftir héldum við áfram norður eftir og nú til Vilagarcia. Þar áðum við í tvær nætur. Þaðan lá leið til Muros, sem er einstaklega fallegur bær og þar hittum við á sólstöðuhátíð sem fól í sér sprengingar, íkveikjur og ótæpilegar veitingar í boði bæjarbúa. Frá Muros sigldum við í beit til Baiona, sunnan Vigo, uþb 80 sjm., þar sem við áðum yfir nótt. Daginn eftir sigldum við til Vigo. Komum við á nektarströnd og rifum upp kíkinn, en hann var lélegur. Eftir að hafa skrúbbað skútu flugum við til Barcelona, þar sem við "hvíldumst" í tæpa 4 daga áður en haldið var heim eftir hreint frábært og ógleymanlegt ævintýri.
previous pagepages 1 2 3 4 5 ALL next page
Þið sjáið hvað skipperinn fann á markaðnum!
Þið sjáið hvað skipperinn fann á markaðnum!
Komin á barinn rétt hjá hótelinu
Komin á barinn rétt hjá hótelinu
Fengum okkur leiguhjól
Fengum okkur leiguhjól
Flottur
Flottur
Baksjúklingar
Baksjúklingar
Sigurlaug
Sigurlaug
Eftir úrslit í EM 08 - Allir vita hvernig það fór!
Eftir úrslit í EM 08 - Allir vita hvernig það fór!
Enda varð allt galið
Enda varð allt galið
Bílflautað til kl. fokking 5
Bílflautað til kl. fokking 5
Ooooooooo voða gaman!
Ooooooooo voða gaman!
Íiiiiiiiii, hrikalegt fjör....!
Íiiiiiiiii, hrikalegt fjör....!
Gaudi bygging. Of fríkaður f. minn smekk
Gaudi bygging. Of fríkaður f. minn smekk
Dýrt að búa til kleinur
Dýrt að búa til kleinur
Heim, heim, heim....! :o
Heim, heim, heim....! :o
previous pagepages 1 2 3 4 5 ALL next page