photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Á skútu í Galíu: Sanxenxo - Ons - Vilagarcia - Muros - Baiona - Vigo - júní 2008 tree view | thumbnails | slideshow

Á skútu í Galíu: Sanxenxo - Ons - Vilagarcia - Muros - Baiona - Vigo - júní 2008

Ríkarður Már Pétursson keypti sér hlut í 36 feta Beneteau Oceanis Clipper, sem vistuð er í smábátahöfninni í Vigo í Galíu á Spáni, sem er við Atlantshaf norður af Portúgal. Rikki bauð okkur Hrafnhildi og Skúla og Sigurlaugu í vikusiglingu á Renus II og héldum við utan 20. júní til Barcelona. Þaðan flugum við áfram til Vigo, þar sem Rikki átti að vera. Hann var þó strokinn þaðan til Sanxenxo sem er í rúmlega 1 klst. akstursfjarlægð frá Vigo. Komum seint þangað, slökuðum á daginn eftir en fórum uppúr hádegi út og tókum stefnuna á eyjuna Ons, en leyfi yfirvalda þarf til þess (don't ask me why!). Þar lágum við við akkeri en fórum á mótortuðru í land til að skoða eyna og borða kvöldverð. Daginn eftir héldum við áfram norður eftir og nú til Vilagarcia. Þar áðum við í tvær nætur. Þaðan lá leið til Muros, sem er einstaklega fallegur bær og þar hittum við á sólstöðuhátíð sem fól í sér sprengingar, íkveikjur og ótæpilegar veitingar í boði bæjarbúa. Frá Muros sigldum við í beit til Baiona, sunnan Vigo, uþb 80 sjm., þar sem við áðum yfir nótt. Daginn eftir sigldum við til Vigo. Komum við á nektarströnd og rifum upp kíkinn, en hann var lélegur. Eftir að hafa skrúbbað skútu flugum við til Barcelona, þar sem við "hvíldumst" í tæpa 4 daga áður en haldið var heim eftir hreint frábært og ógleymanlegt ævintýri.
previous pagepages 1 2 3 4 5 ALL next page
Skytturnar þrjár
Skytturnar þrjár
Kaptain Konni
Kaptain Konni
Kellingasokkur
Kellingasokkur
Nóttin er ung í Vilagarcia
Nóttin er ung í Vilagarcia
Stefnan tekin morguninn eftir til Muros
Stefnan tekin morguninn eftir til Muros
Hvað segirðu Rikki, sker?
Hvað segirðu Rikki, sker?
Vilagarcia kvödd
Vilagarcia kvödd
Á leið til Muros
Á leið til Muros
Siglingaviti og ekki vanþörf á!
Siglingaviti og ekki vanþörf á!
Skúli skimar, Rikki rýnir (á gps) og sumir stýra
Skúli skimar, Rikki rýnir (á gps) og sumir stýra
Þessi skratti lagði okkur í einelti og ventum við kvæði okkar hressilega í kross. Það var enginn í brúnni heldi ég!
Þessi skratti lagði okkur í einelti
og ventum við kvæði okkar hressilega í kross.
Það var enginn í brúnni heldi ég!
Muros á hátíð sólstaða. Þá kveikja menn nánast í bænum
Muros á hátíð sólstaða. Þá kveikja menn nánast í bænum
Kotmenn eru þeir sem ekki eiga einn svona!
Kotmenn eru þeir sem ekki eiga einn svona!
Elduðum um kvöldið um borð
Elduðum um kvöldið um borð
Allt að verða klárt
Allt að verða klárt
Leikar æsast í landi
Leikar æsast í landi
Að baki allt í báli og brandi - og við bara að borða!
Að baki allt í báli og brandi - og við bara að borða!
Skvísan hans Bolla
Skvísan hans Bolla
Á vígstöðvunum
Á vígstöðvunum
Börnin taka fullan þátt
Börnin taka fullan þátt
Sekkjapípuleikarar
Sekkjapípuleikarar
Hringdans með mömmu
Hringdans með mömmu
Má bjóða ykkur dýrindis heimabrugg?!
"Má bjóða ykkur dýrindis heimabrugg?!"
Fáiði ykkur að borða
"Fáiði ykkur að borða"
Það vantaði ekki veitingar og gestrisni
Það vantaði ekki veitingar og gestrisni
Voooooða gott strákaaar!
"Voooooða gott strákaaar!"
Þröngar götur í Muros
Þröngar götur í Muros
previous pagepages 1 2 3 4 5 ALL next page