Ferð nokkurra félaga, tengdum Toyota, á Vatnajökul helgina 8. - 10. mars 2002. Því miður var skyggni ekkert, hvorki uppúr né niðr'úr, í raun alveg blint á leið heim. Blindhríð var allan laugardaginn og ekki hundi út sigandi. Menn létu það þó ekki á sig fá, lágu ýmist í koju og lásu eða sváfu, eða tóku í spil, og héldu að sjálfsögðu stórveislu um kvöldið. Allar myndir eru Arnars Gíslasonar.