photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Trékyllisvík og Norðurfjörður - júlí 2010 tree view | thumbnails | slideshow

Trékyllisvík og Norðurfjörður - júlí 2010

Hljómsveitin Blek og bytta var boðuð í félagsheimilið í Trékyllisvík um verslunarmannahelgina 2010. Ekki var um annað að ræða en mæta, dansa og klappa í kór - enda Rikki búinn að lýsa komandi fjöri. Við fjölskyldan drifum okkur af stað á fimmtudegi og eftir endalausa tölvupósta og sms-skeyti til Beggu, Arnar, Ingós og Margrétar Helgu féllust þau loks á að koma líka og eru vonandi ekki svikin af ferðalaginu. Fórum nokkrum sinnum í sund, þar sem strákarnir (og Örn) syntu líka í sjónum (myndir klúðruðust), ókum til Ingólfsfjarðar og Ófeigsfjarðar, við Margrét Helga skokkuðum á Krossnesfjall daginn eftir ball (meðan aðrir sváfu) og svo framvegis. Mæli með því að Blek og bytta sé elt á röndum!

Í Ingólfsfirði var okkur tjáð að nú hefðu eigendur húsakosts á staðnum fengið styrk frá Húsfriðunarsjóði til að hefja framkvæmdir sem miða að því að varðveita síldarverksmiðjuna og nálæg hús. Því hefur verið spreyjað í grafitistíl á húsin "hús í einkaeigu, aðgangur bannaður" og er þetta með eindæmum ósmekklega gert. Fallegra hefði verið að reka niður staur framan við húsin og tréplötu þar ofan á með skrifuðum texta á blað með plasti yfir. En nú er búið að spreyja með vegavinnuspreyi á bert og veðrað timbrið og steinsteypuna. Ég skil ekki hvað eigendur voru að hugsa.
previous pagepages 1 2 ALL next page
Í Drangsnesi
Í Drangsnesi
Egill Logi fann sér góða brekku
Egill Logi fann sér góða brekku
Þungt hugsi
Þungt hugsi
Dundað við listasmíð
Dundað við listasmíð
Það er allt til!
Það er allt til!
Hópmynd í sundlauginni á Drangsnesi
Hópmynd í sundlauginni á Drangsnesi
Góð laug Drangsnesinga
Góð laug Drangsnesinga
Pottarnir þeirra aðgengilegir allan sólarhringinn
Pottarnir þeirra aðgengilegir allan sólarhringinn
P. Lúkas Pálsson virðir fyrir sér Veiðileysufjörð
P. Lúkas Pálsson virðir fyrir sér Veiðileysufjörð
Kaldbakur
Kaldbakur
Á Valgeirsstöðum í Norðurfirði
Á Valgeirsstöðum í Norðurfirði
Á kaffihúsinu í Norðurfirði fær maður frábærar kótilettur
Á kaffihúsinu í Norðurfirði fær maður frábærar kótilettur
Ánægð eftir matinn
Ánægð eftir matinn
Tekið í spil seint um kvöld
Tekið í spil seint um kvöld
Margrét Helga og Börkur mætt
Margrét Helga og Börkur mætt
Kolbeinn blæs og blæs
Kolbeinn blæs og blæs
Feðgarnir Ingólfur og Njörður með pumpuna
Feðgarnir Ingólfur og Njörður með pumpuna
Ingólfur, Börkur og Hrafnhildur á laugardagsmorgni
Ingólfur, Börkur og Hrafnhildur á laugardagsmorgni
Í sól og sumriAuður, Egill, Begga, Hrafnhildur og Örn
Í sól og sumri
Auður, Egill, Begga, Hrafnhildur og Örn
Synt í sjónum við Krossneslaug(Þetta er næstum því Bolli lengst til vinstri)
Synt í sjónum við Krossneslaug
(Þetta er næstum því Bolli lengst til vinstri)
Krossneslaug
Krossneslaug
Kolbeinn og Egill Logi í NorðurfirðiUrðartindur framundan
Kolbeinn og Egill Logi í Norðurfirði
Urðartindur framundan
Snæðingur
Snæðingur
Hjónakornin Bergþóra Njála og Örn
Hjónakornin Bergþóra Njála og Örn
Veggjakrot í Ingólfsfirði
"Veggjakrot" í Ingólfsfirði
Lýti
Lýti
Í lýsistankinum.Egill, Kolbeinn og Hjörtur
Í lýsistankinum.
Egill, Kolbeinn og Hjörtur
previous pagepages 1 2 ALL next page