Um Þórudalsheiði (Þórdalsheiði) til Reyðarfjarðar - júlí 2004
Mig hafði lengi langað að líta á þessa leið á ferðum mínum fyrir austan og lét verða af því föstudaginn 30. júlí 2004. Bæði vegna þess að leiðin var sögð falleg og eins gat ég átt von á því að rekast hreindýr. Það fór nú reyndar ekki svo að ég rækist á hreindýr. En leiðin er falleg. Það kom mér á óvart að nú er verið að byggja veginn upp og gera greiðfæran öllum bílum, a.m.k. yfir sumartímann enda styttir vegurinn leiðina austur til Reyðarfjarðar fyrir þá sem koma suðurströndina að sunnan.
Það virðast reyndar ekki allir vera sammála um heiti heiðarinnar því Reyðarfjarðarmegin hefur verið málað yfir u-ið á skiltinu.
Við upphaf leiðar. Skógdalsfjall
Nýr uppbyggður vegur undir Eggjum. Brúðardalsfjall á vinstri hönd
Fallegt gil á leiðinni
Áin Jóka. Vegslóð í hlíð hinum megin ár
Síðan liggur leið inn dalinn til vinstri
Skrýtinn steinn sem fær að njóta sín!
Húsbíll fastur í drullu
Hvalvarða
Horft í átt til Áreyjardals. Stórilækur. Tröllafjall t.h.