Um verslunarmannahelgina 2011 dvöldum við Hrafnhildur og Egill Logi, Vera og Gói, Inger og Bessi á Reykhólum. Höfðum það ýmist sallarólegt eða ekki. Gerðum okkur t.d. ferð á kaffihús á Rauðasandi (400 km leið fram og til baka) - en brugðum okkur líka á bak reiðhjólanna. Hjóluðum að Laugalandi. Á hverju kvöldi var veisla, sem þau Bessi, Inger og Hrafnhildur áttu alfarið heiðurinn af þegar kom að eldamennsku. Vera og Gói komu m.a. með einhverja bestu nautasteik sem ég hef bragðað.