photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Sumarferð BÍP 2014 - Dýrafjörður og leiðir allt um kring tree view | thumbnails | slideshow

Sumarferð BÍP 2014 - Dýrafjörður og leiðir allt um kring

Í árlegri sumaferð BÍP 2014 héldum við til á Hótel Núpi dagana 5. til 11. júlí. Það er rétt að taka það fram strax að í 15 árlegum ferðum hópsins hefur okkur aldrei liðið jafn vel á einum stað og í ár í umsjá Guðmundar hótelstjóra á Núpi enda aðstaðan þar með eindæmum þægileg og heimilisleg og gestrisni staðarhaldara einstök.

Í ferðinni heimsóttum við Bettý á Ingjaldssandi, skoðuðum lystigarðinn Skrúð og Botnsskóg í Dýrafirði, litum uppá Bolafjall, hjóluðum í Skálavík, fórum um götur Bolungarvíkur og Ísafjarðar undir leiðsögn heimamanns (og meðlims BÍP), hjóluðum Óshlíðina og Bolungarvíkurgöng (sem ættu að heita Óshlíðargöng), heimsóttum Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal, þar sem við þáðum í upphafi hádegisverð hjá Hafdísi Gísladóttur og eiginmanns hennar, Einars Sveins Ólafssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Við gengum líka uppí hyrnu Dufansdalsnúps í Fossfirði í Arnarfirði til að skoða göng surtarbrandsnámunnar sem þar eru. Einnig gengum við út með Hesti sem skagar út í Ísafjarðardjúp milli Hestfjarðar og Seyðisfjarðar. Undir lok ferðalagsins hjóluðum við inn Önundarfjörð frá aðalveginum vestur, út fjörðinn hinum megin og áfram út Önundarfjörð til Valþhófsdals og allt til baka til Flateyrar. Þar tók Sleggjan á staðnum á móti okkur, Bryndís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Arctic Odda, ásamt stjórnarformanni þess, Sigurði Péturssyni, framkvæmdastjóra Dýrfisks.

Þetta var í alla staði ánægjuleg ferð, við sluppum fyrir horn með veðrið. Ferðalagið hófst með hávaðaroki og stórrigningum, en þó einkenndust nær allir ferðadagar af mildu og þægilegu veðri sem kom í veg fyrir að maður væri að drepast úr hita í mollunni. Það munaði samt mjóu eitt síðdegið!
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Stelpurnar hjóluðu langleiðina í Skálavík
Stelpurnar hjóluðu langleiðina í Skálavík
Nestispása
Nestispása
Hrafnhildur hjólaði til Bolungarvíkur
Hrafnhildur hjólaði til Bolungarvíkur
Kroppsstaðir í bakgrunniÞaðan var langamma Bolla
Kroppsstaðir í bakgrunni
Þaðan var langamma Bolla
Toppnum senn náð
Toppnum senn náð
Brunað niður Hlíðardal til Bolungarvíkur
Brunað niður Hlíðardal til Bolungarvíkur
Við hjóluðum um þorpið
Við hjóluðum um þorpið
Að því búnu hjóluðum við í átt til Óshlíðar
Að því búnu hjóluðum við í átt til Óshlíðar
Skúli og Svenni koma brunandi
Skúli og Svenni koma brunandi
Krossinn við Hald undir ÓshhyrnuSnæfjallaströnd í fjarska
Krossinn við Hald undir Óshhyrnu
Snæfjallaströnd í fjarska
Hrun og skriður af ýmsu tagi, allt eftir árstíðumeru daglegt brauð á gamla veginum undir Óshlíð
Hrun og skriður af ýmsu tagi, allt eftir árstíðum
eru daglegt brauð á gamla veginum undir Óshlíð
Stutt eftir. Við hjóluðum göngin til bakaTraðarhyrna í fjarska
Stutt eftir. Við hjóluðum göngin til baka
Traðarhyrna í fjarska
Flestir (!) teygðu áður en farið var í sund
Flestir (!) teygðu áður en farið var í sund
Seinnipartinn brast á þetta líka blíðviðriMýrarfell fyrir miðju
Seinnipartinn brast á þetta líka blíðviðri
Mýrarfell fyrir miðju
Fremst handan fjarðar f.v.: Hólahvilft, Hæð, Þverfell & Haukadalsfell
Fremst handan fjarðar f.v.: Hólahvilft, Hæð, Þverfell & Haukadalsfell
Hólahvilft
Hólahvilft
Hrafnhildur bauð Bessa uppá harðfisk
Hrafnhildur bauð Bessa uppá harðfisk
Hlíð, sumarhús Þrastar Sigtryggssonar Guðlaugssonar
Hlíð, sumarhús Þrastar Sigtryggssonar Guðlaugssonar
Við Dynjanda á leið til Bíldudals
Við Dynjanda á leið til Bíldudals
Einar Sveinn Ólafsson & Hafdís Gísladóttir tóku vel á móti okkur
Einar Sveinn Ólafsson & Hafdís Gísladóttir tóku vel á móti okkur
Hafdís býður í bæinn
Hafdís býður í bæinn
Bessi, Hrafnhildur, Einar Sveinn og Svanhildur
Bessi, Hrafnhildur, Einar Sveinn og Svanhildur
Dýrindis máltíð bauð ferðalanganna
Dýrindis máltíð bauð ferðalanganna
Vettvangskönnun í verksmiðjunni
Vettvangskönnun í verksmiðjunni
Það var margt að sjá!
Það var margt að sjá!
Bræðurnir Bessi og Einar Sveinn
Bræðurnir Bessi og Einar Sveinn
Óunnið hráefni á útilager
Óunnið hráefni á útilager
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page