photo sharing and upload picture albums photo forums search pictures popular photos photography help login
Bolli Valgarðsson | profile | all galleries >> Galleries >> Sumarferð BÍP 2014 - Dýrafjörður og leiðir allt um kring tree view | thumbnails | slideshow

Sumarferð BÍP 2014 - Dýrafjörður og leiðir allt um kring

Í árlegri sumaferð BÍP 2014 héldum við til á Hótel Núpi dagana 5. til 11. júlí. Það er rétt að taka það fram strax að í 15 árlegum ferðum hópsins hefur okkur aldrei liðið jafn vel á einum stað og í ár í umsjá Guðmundar hótelstjóra á Núpi enda aðstaðan þar með eindæmum þægileg og heimilisleg og gestrisni staðarhaldara einstök.

Í ferðinni heimsóttum við Bettý á Ingjaldssandi, skoðuðum lystigarðinn Skrúð og Botnsskóg í Dýrafirði, litum uppá Bolafjall, hjóluðum í Skálavík, fórum um götur Bolungarvíkur og Ísafjarðar undir leiðsögn heimamanns (og meðlims BÍP), hjóluðum Óshlíðina og Bolungarvíkurgöng (sem ættu að heita Óshlíðargöng), heimsóttum Íslenska kalkþörungafélagið á Bíldudal, þar sem við þáðum í upphafi hádegisverð hjá Hafdísi Gísladóttur og eiginmanns hennar, Einars Sveins Ólafssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Við gengum líka uppí hyrnu Dufansdalsnúps í Fossfirði í Arnarfirði til að skoða göng surtarbrandsnámunnar sem þar eru. Einnig gengum við út með Hesti sem skagar út í Ísafjarðardjúp milli Hestfjarðar og Seyðisfjarðar. Undir lok ferðalagsins hjóluðum við inn Önundarfjörð frá aðalveginum vestur, út fjörðinn hinum megin og áfram út Önundarfjörð til Valþhófsdals og allt til baka til Flateyrar. Þar tók Sleggjan á staðnum á móti okkur, Bryndís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Arctic Odda, ásamt stjórnarformanni þess, Sigurði Péturssyni, framkvæmdastjóra Dýrfisks.

Þetta var í alla staði ánægjuleg ferð, við sluppum fyrir horn með veðrið. Ferðalagið hófst með hávaðaroki og stórrigningum, en þó einkenndust nær allir ferðadagar af mildu og þægilegu veðri sem kom í veg fyrir að maður væri að drepast úr hita í mollunni. Það munaði samt mjóu eitt síðdegið!
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page
Í roki og rigninu á leið út Hrútafjörð frá Brú
Í roki og rigninu á leið út Hrútafjörð frá Brú
Í ÞorskafirðiSkúli, Jón og spúsur fóru Suðurfirðina
Í Þorskafirði
Skúli, Jón og spúsur fóru Suðurfirðina
Drangsnes og Grímsey í Steingrímsfirði
Drangsnes og Grímsey í Steingrímsfirði
 Núpur í Dýrafirði
Núpur í Dýrafirði
Á Núpi vorum við í frábæru yfirlæti í 6 nætur
Á Núpi vorum við í frábæru yfirlæti í 6 nætur
Svenni hugar að birgðunum
Svenni hugar að birgðunum
Matargerð í algleymingi
Matargerð í algleymingi
Halldór
Halldór
Hópurinn samankominn í upphafi ferðar
Hópurinn samankominn í upphafi ferðar
Gerðhamradalur á leið til Ingjaldssands um Sandsheiði
Gerðhamradalur á leið til Ingjaldssands um Sandsheiði
Brekkudalur - Ingjaldssandur
Brekkudalur - Ingjaldssandur
Önundarfjörður - Ófæra & Hrafnaskál í HrafnaskálanúpiBjargavík handan fjarðar
Önundarfjörður - Ófæra & Hrafnaskál í Hrafnaskálanúpi
Bjargavík handan fjarðar
International Harvester.Þarna veitir ekki af jarðýtum á vetrum
International Harvester.
Þarna veitir ekki af jarðýtum á vetrum
Hnísur í fjallinu BarðaSkáladalur & Skáladalsá í hvarfi
Hnísur í fjallinu Barða
Skáladalur & Skáladalsá í hvarfi
Hrafnhildur við fjarskiptahúsið
Hrafnhildur við fjarskiptahúsið
Svanhildur, Svenni og Skúli hugsi yfir júlíhaustlægðinni
Svanhildur, Svenni og Skúli
hugsi yfir júlíhaustlægðinni
Við látum ekki kuldakastið á okkur fá
Við látum ekki kuldakastið á okkur fá
Svanhildur & halldórSæból & Sæbólskirkja í baksýn
Svanhildur & halldór
Sæból & Sæbólskirkja í baksýn
Skúli
Skúli
Inger
Inger
Svenni
Svenni
Halldór við Skáladalsá
Halldór við Skáladalsá
Hrafnhildur með hanska af Bessa
Hrafnhildur með hanska af Bessa
Sigurlaug, og Inger stekkur inná myndina
Sigurlaug, og Inger stekkur inná myndina
Sæbólskirkja á Ingjaldssandi
Sæbólskirkja á Ingjaldssandi
Með Elísabetu „Bettý“ Pétursdóttur,bónda á Ingjaldssandi
Með Elísabetu „Bettý“ Pétursdóttur,
bónda á Ingjaldssandi
Bettý kann að segja frá
Bettý kann að segja frá
previous pagepages 1 2 3 4 5 6 ALL next page