Við Einar, Jón og Þóra héldum af stað á laugardagasmorgni í ausandi rigningu og roki áleiðis á Þingvöll. Förinni var heitið á Hveravelli um Skjaldbreið, Tjaldfell, Langavatn og Hagafellsjökul. Sem við og gerðum og létum ekki deigan síga þrátt fyrir votviðri dauðans, rok og síðan svartaþoku, krapa á láglendi og skemmda felgu. Héldum ótrauð uppá jökul, stefndum að punkti á hábungu og tókum síðan strauið í Þursaborg. Heyrðum í 9 bíla Útivistarhópi sem við biðum eftir í Þursbaborg og vorum svo samferða í skála. Á sunnudagsmorgni héldum við að stað til Geysis og tók sú ferð 19 tíma í krapa, krapa, krapa. Komum til borgarinnar á mánudagsmorgni - á fertugsafmælisdegi Hrafnhildar! Það er mér eftirminnilegast frá ferðinni hve Nóni, fyrirliði Útivistarhópsins, er fæddur í hlutverk leiðsögumannsins. Alltaf hress, bjartsýnn, jákvæður og umfram allt: fram úr hófi þolinmóður.