Sunnudag ár hvert fyrir verslunarmannahelgi er haldin messa í kirkjugarðinum að Þönglabakka, ´ættarsetrinu', í Þorgeirsfirði í Fjörðum. Í ár söng frænkukórinn Fjörðurnar við messuhaldið og þá var ekki um annað að ræða en að drífa sig. Hef reyndar komið að Þönglabakka en nú var sérstakt tilefni. Við Hrafnhildur, Egill Logi, Vera systir og Gói mágur gistum í Gili á Leirdalsheiði nóttina áður og gengum svo ásamt rúmlega 100 manns frá leirum Hvalvatnsfjarðar yfir hálsinn. Það er þægileg ganga. Að lokinni messu héldum við að Dæli í Víðidal í Húnavatnssýslu, þar sem við gistum, og fórum svo hring um Vatnsnes daginn eftir á leið heim.