Agli Loga áskotnuðust forláta skíði systur sinnar elskulegrar og tók þau traustataki. Á örfáum klukkustundum tileinkaði hann sér listina og fór fljótlega úr barnalyftunni í alvöru diskalyftu sem ber hann upp á hæstu toppa. Eftir að hafa eitt fjórum dögum á spjalli við lyftu- og skálaverði meðan drengurinn brunaði hverja ferðina á fætur annarri varð ekki hjá því komist lengur að karl faðir hans fengi sér skíði á ný til að taka þátt í fjörinu af fullum þunga.
Hér og hér eru myndbönd af Agli í Skálafelli 9. mars 2008.
Eyja og Þórunn fóru með okkur fyrsta kvöldið í Skálafell
Morguninn eftir fórum við snemma í Skálafell
og æfðum og æfðum!
Það verður enginn óbarinn biskup!
"Ég lét mig detta."
Allt lokað.
En við létu það ekki á okkur fá
Svo var aðeins farið á sleða líka
Svo var kakó á milli.
Svo aftur skíði...
Og nú í Jósepsdal
Þar eru langar brekkur og fleiri á ferð
Koma so...
Flottar brekkur þar.
Svo renndi sér um 40 manna hópur gönguskíðamanna framhjá