Helgina 14. - 17. apríl dvöldum við nokkrir félagar á Hólmavík, þar sem við gistum á Gistiheimilinu þar í bæ í góðu yfirlæti. Í för voru Bolli og Ragnar Th., Einar Gylfa og Steinu, Jón Sverrir og Þóra, Einar Sveins og Dóa auk Óskars Ólafs og sonar hans Daða. Á laugardagsmorguninn héldum við af stað áleiðis á Drangajökul, fórum frá gamla sæluhúsinu á Steingrímsfjarðarheiði og eftir venjubundnu trakki að jöklinum. Vötn voru enn undir snjó, krapi vart sjáanlegur og færi gott. Á jöklinum tók á hinn bóginn hið verra við, þar var færið mjög erfitt, vart fyrir aðra en þá sem með skriðgír voru enda var Pajeroinn hans Óskars sá eini sem eitthvað dreif og aldrei þurfti að kippa í. Hinir, og þó Bolli sýnu mest, sem varð til þess að honum fannst lítt til fyrstu kynna af Grand Hawk koma. Þeim var ekki gefinn annar séns heldur skipt út ásamt nýju felgunum og Mudderinn tekinn upp aftur á álfelgum. Allt annað líf!