Brugðum okkur aftur í Trékyllisvík á ball með Bleki og byttu um verslunarmannahelgi. Með okkur Hrafnhildi í för voru, auk Egils Loga, Vera systir og Gói mágur. Fremur þungt var í veðri, hálf kalt og þokugjarnt, en á milli milt og gott. Ekki undan neinu að kvarta. Litum á föstudagskvöldinu á Skrall fyrir ball á kaffihúsinu í Norðurfirði (þar sem bjórinn er seldur við forkastanlegu okurverði), kíktum á drullubolta í haugarigningu, Ingólfsfjörð, Ófeigsfjörð og Hvalá, heitu laugina við Gjögurflugvöll og að sjálfsögðu Krossneslaug.